Vegna veðurs þurfti að bakka þyru Landhelgisgæslunnar síðustu tvo kílómetrana til Neskaupstaðar á dögunum. Flugstjórinn segir ekki gripið til þess oft en það sé stundum nauðsynlegt í slæmu skyggni til þess að hafa neyðarleið út. Þá var mikið undir en flytja þurfti lækni og lögregluþjóna á staðinn ásamt því að sækja þungaða konu sem hafði þegar hafið fæðingu.