„Hér er allt enn í fullum gangi og búið að vera að mótmæla síðan klukkan þrjú,“ segir Iðunn Andrésdóttir, blaðamaður mbl.is, sem var á vettvangi mótmæla við Alþingishúsið þegar hún ræddi við mbl.is nú fyrir skemmstu. Hafi lögregla veifað úðabrúsum með gasi eða varnarúða þegar mótmælendur settust niður við hliðið inn í garð Alþingishússins.