Í byrjun árs var fjölskyldu sem hafði búið á Íslandi í nokkra mánuði, vísað af landi brott þar sem í ljós kom að fjölskyldufaðirinn var með sterk tengsl við hryðjuverkasamtökin ISIS. Yfirlögregluþjónn segir að ekki sé hægt að útiloka að hér á landi séu fleiri sem tengist hryðjuverkjasamtökum.