Tónlistarmaðurinn og leikarinn Júlí Heiðar Halldórsson segir að röð tilviljana hafi orðið til þess að hann ákvað að sækja um starf hjá Arion banka samhliða leik- og tónlistarferlinum. Júlí Heiðar er þekktur fyrir lítið annað en að vera alltaf með marga bolta á lofti og í dag starfar hann sem sérfræðingur í fræðslumálum hjá Arion banka ásamt því að semja og gefa út tónlist.