Sífellt erfiðara reynist að fá ungt fólk til að skrá sig í herþjónustu, bæði í Úkraínu og í Rússlandi. Karl Garðarsson, fyrrum þingmaður og fréttamaður þekkir vel til í Úkraínu og fylgist með stríðsátökunum. Hann segir að nú geti ungir menn átt von á því að verða hreinlega rænt á götum úti og skikkaðir í herinn.