Umræða laxveiðimanna og eldismanna hefur verið hávær og afskaplega skautuð, eða pólariseruð. Millivegurinn er ekki til. Guðni Guðbergsson sviðsstjóri hjá Hafrannsóknastofnun kannast við þessa hörðu umræðu þegar kemur að umræðu um sjókvíaeldi. „Það er ekki auðvelt að vinna undir þessari umræðu.“