Lungann úr árinu hefur Jónsi í Sigur Rós verið á ferð og flugi að kynna sólóskífu sína Go. Á miðvikudag heldur hann tónleika í Laugardalshöll sem verða síðustu tónleikarnir í ferðinni. Eftir tónleika í Bretlandi fyrir stuttu brugðu Jónsi og hljómsveit á leik og spiluðu órafmagnað lag fyrir gesti mbl.is.