„Þetta var hrein hörmung,“ sagði Kristján Arason, annar þjálfara FH eftir tapið gegn Akureyringum fyrir norðan í kvöld. FH var níu mörkum undir í hálfleik, og Kristján sagðist að sá munur hefði verið mjög sanngjarn. En þegar upp var staðið kvaðst hann þó ánægður með að FH-liðið gafst ekki upp.