Í dag tóku 26 nemendur, sem hefja nám í HÍ í haust, við styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta HÍ. Styrkurinn nemur 300 þús kr. og niðurfellingu skráningargjalda á fyrsta ári. Alexander Gabríel Guðfinnsson var einn þeirra en hann stefnir á nám í læknisfræði i haust einungis 17 ára gamall.