Hrekkjavökuhátíðin nýtur mikilla vinsælda hér á landi og sala á alls kyns búningum og búnaði er nú meiri í tenglum við hátíðina en öskudaginn. Börn landsins klæða sig upp í búninga af þessu tilefni og sumir hverjir eru umdeildir þar sem þeir þykja sýna ungar stúlkur á óviðeigandi hátt.