Tölvuleikjafyrirtækið Plain Vanilla verður þriggja ára í nóvember. Þorsteinn Baldur Friðriksson, framkvæmdastjóri þess, segir áherslur fjárfesta öðruvísi hér á landi en í Bandaríkjunum, þar sem horft er á mistök sem hluta af þroskaferli frumkvöðla, en ekki slæman hlut. Hann útskýrir einnig hvernig fjármagnsleit svipar til tölvuleiks.