Hagvöxturinn á fyrri hluta ársins er meiri en vonast hafði verið eftir og sá samdráttur sem sést í fjárfestingum má einkum rekja til sveiflna í fjárfestingum á flugvélum og skipum. Í öðrum atvinnugreinum sést aftur á móti aukning í fjárfestingu, sem er það sem mestu máli skiptir.