Stjórnvöld í Suður-Kóreu segja að það gæti tekið allt að tvo mánuði að ná upp á yfirborðið líkum allra þeirra sem létust þegar ferja sökk í Gulahafið á miðvikudag. Staðfest er að 36 eru látnir en 270 er saknað. Ekki hefur verið útilokað að enn sé fólk á lífi um borð.