Brynjar Karl er 11 ára gamall einhverfur drengur með háleit markmið, hann ætlar að verða fyrstur til að byggja ríflega 6 metra langa eftirlíkingu af hinu sögufræga Titanic. 56 þús. legókubba þarf í verkið en starfsmaður Legó var á landinu á dögunum og afhenti Brynjari kubba og veitti honum ráðgjöf.