Páll Gíslason þjálfari Þórs var „hundfúll, grautfúll“ eftir markalaust jafnteflið gegn Keflavík á Þórsvelli í dag. Hann sagðist þó ánægður með flest hjá Þórsliðinu, það hefði átt mörg góð upphlaup en herslumuninn vantað. Páll sagðist ekki hafa skilið nokkrar ákvarðanir dómarans - þær hefðu verið út í hött.