Hinsegin dagar hófust í dag í Blóðbankanum til að vekja athygli á að samkynhneigðir karlar fá ekki að gefa blóð hér á landi. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, sýndi málinu stuðning. Hann segir regluna á vissan hátt vera barn síns tíma og að það sé „fallegt að hommar vilji gefa blóð eins og aðrir“.