Erlendur Bogason kafar reglulega í Eyjafirði þar sem hann hefur myndað samband við steinbítinn Stefaníu sem tekur vel á móti Erlendi þegar hann kemur og færir henni æti. Erlendur hefur tekið magnaðar myndir af samskiptum sínum við Stefaníu sem eru frumsýndar í dag í tilefni af Fiskideginum mikla.