Þak gangsins sem lak á Landspítalanum um helgina verður ekki lagað í bráð. Föturnar sem dropaði í um helgina og vöktu athygli gætu því sést að nýju í haustlægðunum sem eru framundan. Yfirmaður fasteigna spítalans segir starfsfólk orðið samdauna ástandinu og kippi sér ekki upp við það.