„Þau eru alltaf að spyrja, hvað er í vatninu á Íslandi,“ segir Katrín Tanja Davíðsdóttir tvöfaldur heimsmeistari í Crossfit, um áhuga erlendis á íslensku Crossfit fólki en alþjóðlegt Crossfit mót verður haldið í Laugardalshöll í byrjun maí. Von er á 2-3000 manns til landsins í tengslum við mótið.