„Okkar hlutverk er að gera það samfélag sem við búum í betra,“ segir Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, allir fari í Krónuna og það sé verslunarinnar að minnka matarsóun og vera orkusparandi í innkaupum. Umhverfisverndin sé langferð og nauðsynlegt að taka stöðugt skref fram á við.