Í Hallargarðinum við Fríkirkjuveg 11 er sýningin Eldblóm sem er hluti af Listahátíð Reykjavíkur. Það er dansarinn Sigríður Soffía Níelsdóttir sem á heiðurinn af henni en hún hefur hannað flugeldasýningar m.a. á Menningarnótt. Hugmyndin kemur frá Japan þar sem tengsl flugelda og náttúru eru sterk.