Sérhannað úr fyrir 30 punda klúbbinn

Gilbert Guðjónsson úrsmiður afhendir Nils Folmer fyrsta úrið, enda er …
Gilbert Guðjónsson úrsmiður afhendir Nils Folmer fyrsta úrið, enda er Nils bæði meðlimur í 30 punda klúbbinum og hannaði auk þess skífuna á úrinu. Ljósmynd/JS

JS Watch Company Reykjavik og Gilbert úrsmiður hafa kynnt nýtt úr framleitt í samstarfi við og fyrir staðarhaldara í Laxá í Aðaldal, þá bræður Hermóð og Árna Pétur Hilmarssyni.

Úrið er framleitt sérstaklega fyrir 30 punda klúbb Laxár í Aðaldal og er eingöngu fáanlegt fyrir þá sem hafa öðlast inngöngu í klúbbinn með því að veiða 30 punda eða stærri lax þar.

Laxá í Aðaldal er ein þekktasta stórlaxaá landsins en árið 1942 veiddist þar einn stærsti fluguveiddi lax Íslandssögunnar; 36 punda hængur, og er áin alla jafna talin helsta stórlaxaá Íslands.

Úrið er glæsilegt, en einungis þeir sem eru skráðir í …
Úrið er glæsilegt, en einungis þeir sem eru skráðir í 30 punda klúbbinn í Laxá hafa rétt til að eignast það. Ljósmynd/JS

Hugmyndin að sérstöku úri tileinkuðu 30 punda klúbbi Laxár í Aðaldal kviknaði einmitt við bakka árinnar fyrir nokkrum árum þegar JS-menn voru við veiðar með Hermóði Hilmarssyni staðarhaldara.

„Úrið er byggt á grunni hins rómaða Sif NART-úrs sem er í notkun hjá þyrlu, flugsveit, köfurum og sprengjusveit Landhelgisgæslu Íslands en úrið er vatnshelt niður á 1.000 metra dýpi og hannað sérstaklega fyrir erfiðar aðstæður og hefur því verið vinsælt hjá veiðimönnum.

Bakið á úrin er útgrafið til vitnis um klúbbinn og …
Bakið á úrin er útgrafið til vitnis um klúbbinn og afrekið sem viðkomandi handhafi hefur unnið. Ljósmynd/JS

Það er með fagurblárri sunburst-skífu, sjálflýsandi vísum og á bak þess er svo grafið merki 30 punda klúbbsins,“ segir Grímkell P. Sigurþórsson, yfirhönnuður og einn af eigendum JS Watch Company, þegar hann er beðinn að lýsa úrinu.

Skífuna á úrið hannaði Nils Folmer Jorgensen sem er vel þekktur stórlaxahvíslari. Nils er menntaður grafískur hönnuður með mikla reynslu og var það því vel við hæfi að fá hann til verksins.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert