Bleikjan er mætt á Þingvöllum

Þingvallableikjan er alveg magnaður fiskur. Þessi er fyrirmyndar eintak og …
Þingvallableikjan er alveg magnaður fiskur. Þessi er fyrirmyndar eintak og fer í reyk. Óskar Örn segir að fiskur hafi verið að vaka nánast um allt. Ljósmynd/ÓÖA

„Það er alveg ofboðslega mikið líf hérna. Fuglinn á fleygiferð um allt, krían er komin, birkið farið að taka vel við sér og fiskur víða í uppítöku,“ sagði Óskar Örn Arnarson í samtali við Sporðaköst, þegar hann var að hætta veiðum á Lambhaganum í Þingvallavatni um miðjan dag.

„Ég tók bara stutt skrepp eftir að ég var búinn að skutla strákunum í skólann. En þetta er allt komið á fullt. Ég sá flotta bleikju velta sér fyrir framan mig. Ég náði að kasta á hana Peacock með kúlu og strippaði rólega. Hún nelgdi þetta og þvílíkt flott bleikja. Spikfeit og eitthvað á milli 50 og 55 sentímetrar. Gríðarvel haldin og verður skellt í reyk. Ég var ekki með málband á mér en er með 70 sentímetra merki á stönginni og því held ég að þetta sé nærri lagi.“

Þetta er útsýnið sem flesta veiðimenn dreymir um. Þá er …
Þetta er útsýnið sem flesta veiðimenn dreymir um. Þá er bara að drífa sig af stað. Bleikjan er mætt á Þingvöllum og reyndar víða. Ljósmynd/ÓÖA

Þetta er fyrsta vatnaveiðin hjá Óskari í ár, en hann segist búinn að vera mjög duglegur í sjóbirtingnum og þá fyrst og fremst í Leirvogsá. 

Og hvernig hefur gengið þar?

„Bara fáránlega vel, allavega hjá mér. Ég bý þarna skammt frá og hef verið nánast daglegur gestur,“ hlær hann.

Lóa Kristín með einn af mörgum birtingum sem þau feðgin …
Lóa Kristín með einn af mörgum birtingum sem þau feðgin veiddu í Leirvogsá í vor. Ljósmynd/ÓÖA

Hvað af því sem þú hefur verið að nota hefur gefið best?

„Það er baraSquirmyWormy. Hún er ótrúlega mögnuð í birtingnum. Ég skal alveg viðurkenna að ég á í ástar-haturssambandi við þessa flugu en hún virkar rosalega vel. Svo hafði ég gaman af því að dóttir mín, Lóa Kristín sem er tólf ára, landaði mjög flottum birtingi sem mældist 73 sentímetrar.“

Þetta er skreppveiði úr Elliðavatni í dag. Tóku allar Pheasant …
Þetta er skreppveiði úr Elliðavatni í dag. Tóku allar Pheasant Tail númer sextán. Smátt skal það vera. Veiðin hefur verið með ágætum í Elliðavatni upp á síðkastið. Ljósmynd/DKE

Mjög líflegt er í Elliðavatni og Vífilsstaðavatni og helst að vel gefi á morgnana en samt er veiði allan daginn ef menn standa við. Daníel Karl Egilsson var í Elliðavatni í dag og landaði á stuttum tíma þremur boltableikjum sem allar tóku Pheasant Tail númer sextán. „Ég var með Buzzer númer fjórtán sem efri fluguna en þær tók allar Pheasant Tail sem var neðri flugan,“ sagði Daníel Karl í samtali við Sporðaköst.

Hann var ekki lengi við, stoppaði í um tvo tíma og telst þetta vel ferðarinnar virði. Nú erum við að nálgast skemmtilegasta tímann í vatnaveiðinni og gaman væri að fá myndir og línu frá lesendum af skemmtilegri veiði. Netfangið er eggertskula@mbl.is.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert