Hrollvekjandi niðurstöður um erfðamengun

Rafn Valur Alfreðsson með fallegt eintak af villtum laxi úr …
Rafn Valur Alfreðsson með fallegt eintak af villtum laxi úr Norðurá nú í sumar. Erfðablöndun er nú staðfest í fjölmörgum ám á Íslandi og er hún rakin til norskra laxa í sjókvíum sem hafa sloppið. Ljósmynd/Jóhann Birgisson

Skýrsla Hafrannsóknastofnunar um erfðablöndun villta íslenska laxins og norskra eldislaxa í sjókvíum við landið, hefur loksins litið dagsins ljós. Skýrslan staðfestir það sem margir óttuðust að erfðablöndun hefur átt sér stað í fjölmörgum laxveiðiám.

Niðurstöðurnar eru hrollvekjandi fyrir margra hluta sakir. Erfðablöndu getur breytt miklu þegar villtir stofnar eiga í hlut og jafnvel valdið hnignun þeirra, segir meðal annars í skýrslunni.

Frá því að sýnataka fór fram og þar til niðurstöðurnar eru nú kynntar í skýrsluformi hefur orðið mikil breyting. Sjókvíaeldi hefur margfaldast og mun meira magn af laxi hefur sloppið úr kvíum eftir að sýnatöku lauk. Sambærileg rannsókn sem væri gerð núna myndi án efa sýna enn svartari mynd.

Fjölmargar ár eru nefndar til sögunnar þar sem staðfestir eru blendingar í formi seiða. Að sama skapi greinir skýrslan frá því að fundist hafi eldis seiði í íslenskum ám.

Sama hvernig á málið er litið er um að ræða kolsvarta skýrslu sem boðar miklar náttúruvá fyrir villta íslenska laxinn. Ísland er að verða eitt helsta og síðasta vígi þessa merka fisks en nú er staðfest að það vígi er að hruni komið.

Laxaseiði sett út í sjókvíar hjá Fiskeldi Austfjarða í Berufirði, …
Laxaseiði sett út í sjókvíar hjá Fiskeldi Austfjarða í Berufirði, Vorið 2019. Miðað við niðurstöður Hafrannsóknastofnunar þá vakna fjölmargar áleitnar spurningar um sjókvíaeldi. mbl.is//Helgi Bjarnason

Í frétt á vef Hafrannsóknarstofnunar um skýrsluna segir. „Rannsóknin greindi sýni sem rekja má til hrygningar á árunum 2014 til 2019. Á þeim árum var framleiðslumagn í laxeldi í sjókvíum að meðaltali 6900 tonn.“ Þessi orð sýna að skýrslan er ekki bara byggð á gömlum gögnum heldur hafa aðstæður við Íslandsstrendur gjörbreyst frá þeim tíma. Sjókvíaeldi hefur margfaldast.

Um niðurstöðurnar segir í sömu frétt. „Alls greindust 133 fyrstu kynslóðar blendingar (afkvæmi eldislaxa og villtra laxa) í 17 ám (2,1% sýna, innan 18% áa). Eldri blöndun (önnur kynslóð eða eldri) greindist í 141 seiðum í 26 ám (2,2% sýna, innan 29% áa). 

Svo segir: „Fyrstu kynslóðar blendingar voru algengari á Vestfjörðum en Austfjörðum sem er í samræmi við að eldið á Austfjörðum hófst síðar og hefur verið umfangsminna.

Eldri erfðablöndun var tíðari á Austfjörðum en Vestfjörðum og tengist líklegast eldinu sem þar var starfrækt í byrjun þessarar aldar. Eldri erfðablöndun var mest áberandi í Breiðdalsá og greindist í 32% (72 af 228) seiðanna.

Erfðablöndun greindist yfirleitt í minna en 50 km fjarlægð frá eldissvæðum en nokkrir blendingar fundust í allt að 250 km fjarlægð.“

Þessar niðurstöður þarf ekki að túlka. Tugir áa fóstra nú erfðablandaða laxa samkvæmt því stöðumati sem Hafró tók fyrir bráðum fjórum árum. Eldinu hefur svo sannarlega vaxið fiskur um hrygg og það er nokkuð ljóst að með miklu umfangsmeira sjókvíaeldi hefur sleppilöxum fjölgað.

„Þörf er á frekari rannsóknum á kynslóðaskiptingu blendinga, umfangi og orsökum dreifingar eldri blöndunar. Niðurstöðurnar sýna að erfðablöndun hefur orðið við hlutfallslega lítið eldismagn,“segir ennfremur.

Íslenski laxinn býr miðað við þessa nýju/gömlu skýrslu við stórkostlegar hættur. Þrátt fyrir þetta er útlit fyrir enn frekari uppbyggingu á sjókvíaeldi á næstu árum.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka