IKEA innkallar vinsælan borðbúnað

IKEA hefur innkallað HEROISK- og TALRIKA-diska, -skálar og -bolla vegna hættu á að þau brotni og valdi bruna.

Í tilkynningu á heimasíðu fyrirtækisins segir:

Öryggi er alltaf efst á forgangslista IKEA og því hefur verið ákveðið að innkalla HEROISK og TALRIKA borðbúnað þar sem hætta er á að hann brotni og valdi hugsanlega bruna ef innihaldið er heitt. Allar vörur IKEA eru prófaðar og standast viðeigandi reglugerðir og staðla. Þrátt fyrir það höfum við fengið tilkynningar um að þessi vara eigi það til að brotna.

IKEA hvetur alla sem eiga HEROISK og TALRIKA diska, skála og bolla til að skila þeim og fá að fullu endurgreitt. Kvittun er ekki skilyrði fyrir endurgreiðslu.

Nánari upplýsingar eru veittar í þjónustuveri í síma 520 2500 og á IKEA.is.

IKEA biðst velvirðingar á óþægindum sem þetta kanna að valda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert