Ómótstæðileg rambókartafla úr smiðju Nönnu

Girnileg þessi fyllta bökunarkartafla, en osturinn mun bráðna í munni …
Girnileg þessi fyllta bökunarkartafla, en osturinn mun bráðna í munni og spretturnar gefa skemmtilegt bragð og áferð. Ljósmynd/Nanna Rögnvaldar

Hér er á ferðinni ómótstæðilega girnileg fyllt kartafla með stilton-osti, parmesanosti og sprettum. Þetta er í raun heil máltíð en það má líka hafa kartöfluna sem meðlæti. Engu að síður er hún mjög saðsöm og dugar vel ein og sér. Heiðurinn af þessari uppskrift á Nanna Rögnvaldar, uppskriftahöfundur og rithöfundur með meiru, en uppskriftina birti hún á uppskriftasíðu sinni Konan sem kyndir ofninn sinn. Þar er um auðugan garð að gresja af uppskriftum sem gaman er að leika eftir og jafnvel gera að sínum.

Rambókartafla

Fyrir 1

  • 1 bökunarkartafla, meðalstór
  • 1 msk. ólífuolía
  • Pipar og salt
  • 2–3 msk. stilton-ostur, gráðostur eða annar ostur að eigin vali, mulinn
  • Sinnepssprettur eða kryddjurtir eftir smekk
  • 2–3 msk. rifinn parmesanostur
  • Væn lófafylli af rambósprettum (radísusprettum) eða öðrum sprettum, kryddjurtum eða salatblöðum eftir smekk

Aðferð:

  1. Takið til eina bakaða kartöflu og pikkið nokkrum sinnum í hana með gaffli á öllum hliðum, setji hana í lítið eldfast mót.
  2. Hellið 1 matskeið af ólífuolíu yfir kartöfluna í eldfasta mótinu og veltið kartöflunni upp úr olíunni og kryddið til með pipar og salti eftir smekk.
  3. Hitið ofninn í 200°C  hita og setji fatið í ofninn og bakið kartöfluna í um það bil klukkutíma.
  4. Þegar kartaflan er búin að bakast í klukkustund ætti hún að vera meyr í gegn og hýðið stökkt. Látið hana bíða í nokkrar mínútur og skerið svo djúpan kross ofan í hana og ýtið með fingurgómunum á alla fjóra fjórðungana til að opna hana.
  5. Hitið ofninn í 225°C hita til að setja kartöfluna inn aftur eftir að hafa fyllt hana.
  6. Myljið ostinn, sem þið viljið nota, ofan í kartöflukrossinn, um það bil 2–3 matskeiðar.
  7. Stráið síðan sprettum af eigin vali yfir kartöfluna eftir smekk.
  8. Stráið næst ofan á þetta 2–3 matskeiðum af parmesanosti.
  9. Setjið síðan kartöfluna aftur inn í ofninn á 225°C hita og bakið í 12–15 mínútur, eða þar til parmesanosturinn er bráðinn og farinn að taka góðan lit.
  10. Takið þá kartöfluna úr ofninum og setjið hana á disk.
  11. Stráið síðan rambósprettum, radísusprettum, allt í kring og ofan á, eins og kartaflan verði hálfgert salat.
  12. Hægt er að borða kartöfluna bara eina sér en hún getur auðvitað líka verið meðlæti.
  13. Það má bera fram smjör eða góða ólífuolíu með ef vill.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert