Frægasta Instragram-tré Íslands seldist strax

Frægasta Instagram-tré Íslands hefur eignast nýtt heimili.
Frægasta Instagram-tré Íslands hefur eignast nýtt heimili. Samsett mynd

Á In­sta­gram-síðu veit­ingastaðar­ins Punk var hið alkunna Punk-In­sta­gram tré aug­lýst til sölu í gær eins og fram kom á matarvef mbl.is í gær. Tréð seldist nánast um leið og það var auglýst til sölu og hefur þetta nafntogaða og mest ljósmyndaða tré landsins eignast nýja eigendur sem eru alsælir með kaupin. Instagram-tréð sem hef­ur prýtt Punk frá upphafi og hefur sannarlega verið kenni­leiti staðar­ins hefur nú eignast nýtt og fallegt heimili.

Nýja heimilið Pósthús Mathöll

Nýja heimilið trésins verður Pósthús Mathöll við Pósthússtræti í hjarta miðborgarinnar. Forsvarsmenn Pósthússins segja aðspurðir að það sem hafi heillað þá við við tréð, hafi verið fegurðin og tréð falli mjög vel inn í umhverfi Pósthús Mathöll og rétta lofthæðin sé til staðar og staðurinn sé sniðinn fyrir hið fræga Instagram-tré. Gestir og gangandi munu því geta borið tréð augum með hækkandi sól og tréð mun án efa halda áfram að blómstra og gleðja matargesti á Pósthúsinu með sinni einstöku fegurð og aðdráttarafli.

Instagram-tréð þykir mikið prýði þegar myndir skal taka.
Instagram-tréð þykir mikið prýði þegar myndir skal taka.
Pósthús Mathöll við Pósthússtræti í hjarta miðborgarinnar verður nýja heimilið.
Pósthús Mathöll við Pósthússtræti í hjarta miðborgarinnar verður nýja heimilið. mbl.is/Ásdís
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert