11 ráð til að bæta húðina fyrir stóra daginn

Það skiptir máli að hugsa vel um húðina, veita henni …
Það skiptir máli að hugsa vel um húðina, veita henni raka og næra hana vel. Valerie Elash/Unsplash

Það þarf ekki að vera flókið að koma húðinni í sitt besta stand fyrir brúðkaupið með einföldum breytingum. Þegar þú borðar hollt, heldur streitu í skefjum og heldur þig við einfalda húðrútínu þá fer yfirleit fljótlega að glitta í ljómandi heilbrigða húð.

1. Grunnurinn að fallegri húð kemur innan frá

Við höfum öll séð húðina okkar ljóma þegar við borðum hollt. Tileinkaðu þér hreint fæði, auktu vatnsdrykkjuna og gættu þess að næra bæði líkama og sál – því streita sést sannarlega á húðinni. Ein glæsilegasta kona landsins sagði eitt sinn að Chia-fræ væru hennar náttúrulega bótox og getur blaðamaður staðfest jákvæð áhrif þeirra á húðina, það sakar því ekki að koma Chia-fræjum að í morgunmatnum.

2. Farðu í húðgreiningu

Ef þú ert ekki viss hverskonar húð þú ert með, pantaðu þá tíma hjá snyrtifræðingi til að komast að því. Það auðveldar þér að velja réttar húðvörur, þú veist betur hvað húðin þín þarf og sparar þannig pening í leiðinni. Sértu að takast á við einhverskonar húðvandamál er réttast að hitta húðlækni og fá viðeigandi aðstoð til að takast á við það og setja upp meðferðaráætlun.

3. Fjarlægðu dauðar húðfrumur reglulega

Einu sinni til tvisvar sinnum í viku skaltu nota sýrur eða ensím til að leysa upp dauðar húðfrumur af yfirborði húðarinnar svo húðin verði áferðarfallegri og ljómameiri. Það er óhætt að segja að Dr. Dennis Gross sé einna þekktastur fyrir sýruskífur sínar en þær koma í þremur mismunandi styrkleikum svo bæði viðkvæmar húðgerðir og þær húðgerðir sem þola meira finna sýru við sitt hæfi. Ef húðin þín þolir almennt ekki sýrur getur verið tilvalið að prófa ensím frekar en það vinnur meira á yfirborðinu og fer ekki jafndjúpt og sýrurnar. Prófaðu Enzymatic Powder frá Skin Regimen en þetta er frábær formúla sem hentar flestum húðgerðum.

Skin Regimen Enzymatic Powder, 9.370 kr. Fæsta á Beauytbar.is.
Skin Regimen Enzymatic Powder, 9.370 kr. Fæsta á Beauytbar.is.
Dr. Dennis Gross Alpha Beta Universal Daily Peel, 3.920 kr. …
Dr. Dennis Gross Alpha Beta Universal Daily Peel, 3.920 kr. (5 stk.)

4. Bættu rakavatni í húðrútínuna

Rakavatn er gjarnan vanmetin húðvara en í þurra loftinu hér á landi þá eru öll form af raka boðin velkomin. Kvölds og morgna, eftir húðhreinsun, er tilvalið að setja aðeins af rakavatni í lófana og þrýsta létt inn í húðina. Bæði fær húðin aukaskammt af raka en hún verður einnig betur búin undir þær húðvörur sem á eftir fylgja. Prófaðu Botanical Kinetics Hydrating Treatment Lotion frá Aveda en formúlan er sérlega rakagefandi, býr yfir næringarríkum þara og húðin verður mýkri eftir fyrstu notkun.

Aveda Botanical Kinetics Treatment Lotion, 4.200 kr.
Aveda Botanical Kinetics Treatment Lotion, 4.200 kr.

5. Notaðu serum til að taka húðina upp á næsta stig

Sumir eiga fjölmörg serum á meðan aðrir vita ekki almennilega hvað serum er. Serum er einfaldlega öflug blanda innihaldsefna til að takast á við þarfir húðar þinnar sem þú notar á undan andlitskremi til að fá aukna virkni. Vinsælt er að nota serum með til dæmis C-vítamíni eða hýalúrónsýru en svo geturðu prófað alhliða serum á borð við Double Serum frá Clarins sem tekst á við allar þarfir húðarinnar. Þessi tvöfalda formúla byggir á 21 plöntukjörnum til að veita húðinni raka, næringu, vernd og endurnýjun svo húðin verður ljómandi og þéttari auk þess sem fínar línur og hrukkur verða minna áberandi.

Clarins Double Serum, 20.599 kr.
Clarins Double Serum, 20.599 kr.

5. Ekki ofgera húðinni með sterkum efnum

Eftir að öflug efni á borð við retínól urðu mun aðgengilegri hafa margir farið offari í notkun þeirra og ætlað sér að fá sléttari húð á korteri með þeim afleiðingum að húðin getur orðið þurr og viðkvæm. Það tekur talsverðan tíma að venja húðina við svo sterk efni og auka þol hennar fyrir þeim hægt og sígandi. Ef þú hefur takmarkaða þolinmæði, en vilt þó öfluga meðferð gegn ótímabærum öldrunarmerkjum, er tilvalið að prófa bakuchiol í stað retínóls. Bakuchiol er gjarnan sagt vera náttúrulegur staðgengill retínóls en er þó mun mildara efni og dregur úr ásýnd fínna lína og hrukkna. Prófaðu Bakuchiol Retinol Alternative Serum frá Herbivore Botanicals en þessi fjólubláa formúla er 100% náttúruleg meðferð til að bæta áferð húðarinnar, draga úr fínum línum og hrukkum og auka raka.

Herbivore Botanicals Bakuchiol Retinol Alternative Serum, 12.990 kr.
Herbivore Botanicals Bakuchiol Retinol Alternative Serum, 12.990 kr.

6. Hugaðu að augnsvæðinu

Það virðist oft koma fyrst fram á augnsvæðinu hvað er í gangi í lífinu. Stundum dugar einfaldlega að nota rakakrem eða augnkrem til að halda viðkvæmri húð augnsvæðisins í góðu ástandi en ef þú þarft aðeins meiri aðstoð, svo augnsvæðið virki eins og þú hafir stjórn á tilfinningum þínum og sért úthvíld, þá er tilvalið að prófa augnserum. Prófaðu Abeille Royale Double R Renew & Repair Eye Serum frá Guerlain en þessi tvöfalda formúla endurmótar augnsvæðið; gerir það bjartara ásýndar, dregur úr baugum og þrota, sléttir úr fínum línum og hrukkum og lætur augnhárin meira að segja virka þéttari.

Guerlain Abeille Royale Double R Renew & Repair Eye Serum, …
Guerlain Abeille Royale Double R Renew & Repair Eye Serum, 20.999 kr.

7. Sólarvörnin er besti vinur húðar þinnar

Kannski ertu orðin þreytt á því að vera minnt stöðugt á sólarvörn í öllum greinum en hér kemur enn ein áminningin. Sólarvörn er ein besta forvörnin gegn ótímabærum öldrunarmerkjum og veitir húðinni að auki svigrúm til viðgerðar án þess að þurfa stöðugt að berjast við útfjólubláa geisla. Notaðu að minnsta kosti SPF 30 og helst SPF 50 fyrir andlitið. Sértu með viðkvæma húð er oft mælt með sólarvörn sem byggir á steinefnum. Prófaðu Mineral Sunscreen For Face frá Clinique en þessi létta og ilmefnalausa sólarvörn hentar flestum húðgerðum.

Clinqiue Mineral Sunscreen For Face, 5.699 kr.
Clinqiue Mineral Sunscreen For Face, 5.699 kr.

8. Ekki vera í tilraunastarfsemi fyrir brúðkaupsdaginn

Um fjórum til sex vikum fyrir brúðkaupsdaginn skaltu ekki vera að prófa þig áfram með nýjar húðvörur því það gæti reynst dýrkeypt ef húðin þín þolir þær illa. Haltu þig við þær vörur sem þú veist að hjálpa húð þinni og einblíndu á að halda rútínu þegar kemur að húðumhirðu. Sömuleiðis er gott að fara tímanlega í prufuförðun til að sjá hvort förðunarfræðingurinn sé að nota á þig eitthvað sem húðin þín þolir ekki, ef þú ætlar ekki að nota snyrtivörur sem þú þekkir til.

Sisley Paris Velvet Sleeping Mask, 20.940 kr.
Sisley Paris Velvet Sleeping Mask, 20.940 kr.

9. Raki, raki, raki

Viku fyrir brúðkaupsdaginn skaltu sleppa öllum ertandi efnum og einblína á að nota rakagefandi og nærandi húðvörur, enda geturðu oft látið fínar línur grynnka með því að veita húðinni öfluga rakagjöf. Daginn fyrir brúðkaupið skaltu nota rakagefandi andlitsmaska, helst næturmaska svo þú vaknir með eins rakafyllta húð og mögulegt er. Prófaðu Velvet Sleeping Mask frá Sisley Paris en þessi endurnærandi og róandi andlitsmaski hjálpar húðinni að endurheimta styrk sinn, sefar ertingu og eykur vellíðan.

Sensai Body Firming Emulsion,12.400 kr.
Sensai Body Firming Emulsion,12.400 kr.

11. Hugaðu að húðinni allsstaðar

Þó flestir einblíni á andlit þegar kemur að húðumhirðu er mikilvægt að bera húðvörurnar yfir andlit, háls og bringu. Ef kjóllinn þinn mun bera handleggi þína eða önnur svæði líkamans þá er gott að bera nærandi líkamskrem eða olíur á líkamann eftir sturtu svo húðin ljómi allstaðar á brúðkaupsdaginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál