Ísland mætir Noregi á La Manga

Íslenska landsliðið mætir Noregi.
Íslenska landsliðið mætir Noregi. mbl.is/Kristinn Magnússon

Noregur og Ísland mætast í vináttulandsleik kvenna á La Manga á Spáni 23. janúar en KSÍ skýrir frá þessu á vef sínum.

Leikurinn er liður í undirbúningi íslenska liðsins fyrir leiki þess í undankeppni HM en liðið spilar síðari fimm leiki sína í keppninni á þessu ári.

Þetta verður fimmtánda viðureign þjóðanna. Ísland hefur unnið þrjá leiki og Noregur átta en þrisvar hafa liðin skilið jöfn. Freyr Alexandersson landsliðsþjálfari mun tilkynnta leikmannahóp sinn á fimmtudaginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert