Tvær breytingar á kvennalandsliðinu

Andrea Mist Pálsdóttir, Þór/KA, til vinstri.
Andrea Mist Pálsdóttir, Þór/KA, til vinstri. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Freyr Alexandersson þjálfari kvennalandsliðsins í knattspyrnu hefur gert tvær breytingar á landsliðshópnum sem heldur til La Manga á fimmtudaginn og mætir Norðmönnum í vináttuleik þann 23. þessa mánaðar.

Elín Metta Jensen úr Val og Sigríður Lára Garðarsdóttir úr ÍBV hafa dregið sig út úr hópnum vegna meiðsla og hefur Freyr valið Andreu Mist Pálsdóttur, Þór/KA, og Hlín Eiríksdóttur úr Val í þeirra stað. Hvorugar þeirra hafa spilað með A-landsliðinu en báðar hafa spilað með U17 og U19 ára landsliðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert