Meistarar þriðja árið í röð

Íslandsmeistarar Álftaness í innifótbolta.
Íslandsmeistarar Álftaness í innifótbolta. Ljósmynd/KSÍ

Álftanes varð um helgina Íslandsmeistari kvenna í innanhússfótbolta og er þetta þriðja árið í röð sem Álftnesingar hreppa þennan titil. 

Fjögur lið tóku þátt í mótinu sem var leikið í tveimur umferðum. Sú fyrri var leikin á Álftanesi í lok nóvember og sú síðari á Hvolsvelli í gær.

Álftanes vann alla sex leikina með markatölunni 33:6 og fékk 18 stig. ÍR fékk 12 stig, Leiknir úr Reykjavík 4 stig og KFR 1 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert