Leggur skóna á hilluna aðeins 23 ára gamall

Sólon Breki Leifsson (nr. 13) í leik með Breiðabliki gegn …
Sólon Breki Leifsson (nr. 13) í leik með Breiðabliki gegn Fylki sumarið 2017. mbl.is/Kristinn Magnússon

Knattspyrnumaðurinn Sólon Breki Leifsson hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna, aðeins 23 ára að aldri.

„Skórnir komnir á hilluna!! Smá steikt en spennandi tímar framundan! Samt alltaf í boltanum!“ skrifaði Sólon Breki á Instagram-aðgangi sínum í gærmorgun.

Hann er uppalinn hjá Breiðabliki og lék sína fyrstu meistaraflokksleiki á ferlinum í Kópavoginum sumarið 2015. Ári síðar var hann lánaður til Vestra, sem lék þá í C-deild, og skoraði átta mörk í 11 leikjum.

Fyrir tímabilið 2018 gekk hann til liðs við Leikni úr Reykjavík og lék með því undanfarin fjögur tímabil.

Alls á hann að baki 91 leik í efstu þremur deildunum hér á landi, þar sem hann skoraði alls 36 mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert