Lögmaður konunnar krefur KSÍ um afsökunarbeiðni

Albert Guðmundsson.
Albert Guðmundsson. Ljósmynd/Szilvia Micheller

Eva B. Helgadóttir, lögmaður konunnar sem kærði Albert Guðmundsson um kynferðisbrot í ágúst á síðasta ári, hefur krafið Knattspyrnusamband Íslands um afsökunarbeiðni vegna ummæla Åges Hareide, þjálfara karlalandsliðsins, um málið.

Þetta kom fram í yfirlýsingu sem hún sendi mbl.is en í yfirlýsingunni kemur meðal annars fram að hún hafi kært niðurfellingu málsins til ríkissaksóknara.

Albert er í leikmannahóp íslenska karlalandsliðsins sem mætir Ísrael í undanúrslitum umspils um laust sæti í lokakeppni EM 2024 en leikurinn fer fram í Búdapest í Ungverjalandi á fimmtudaginn.

Man ekki eftir viðlíka ummælum

Hareide lét hafa það eftir sér á blaðamannafundi á föstudaginn síðasta, þegar hann tilkynnti leikmannahóp íslenska liðsins, að það yrðu mikil vonbrigði ef niðurfelling héraðssaksóknara í máli Alberts yrði kærð.

„Á löngum ferli sem lögmaður man ég ekki eftir viðlíka ummælum og þeim sem landsliðsþjálfari karlalandsliðsins lét falla á dögunum um þetta viðkvæma mál,“ segir í yfirlýsingu lögmannsins.

„Lýsti hann því sem „vonbrigðum fyrir Ísland” ef umbjóðandi minn myndi kæra niðurfellinguna. Með þessum ummælum virðist landsliðsþjálfarinn egna þjóðinni gegn umbjóðanda mínum. Brotaþola, sem hefur eingöngu leitast við að ná fram réttlæti vegna misbeitingu sem hún varð fyrir.

Ég tel að Knattspyrnusambandið skuldi umbjóðanda mínum opinbera afsökunarbeiðni á ummælunum,“ segir meðal annars í yfirlýsingunni sem má sjá í heild sinni hér fyrir neðan.

Yfirlýsing Evu B. Helgadóttur:

Ég get staðfest að umbjóðandi minn hefur kært niðurfellingu héraðssaksóknara til ríkissaksóknara og telur mikilvægt að ákvörðunin sæti endurskoðun.

Með því vill hún leita réttlætis vegna þeirrar misbeitingar sem hún varð fyrir. Það er áréttað að það er aldrei auðveld ákvörðun að stíga það skref að kæra mann fyrir kynferðisbrot og enn síður þegar maðurinn er tengdur fjölskyldunni áralöngum vinaböndum.

Á löngum ferli sem lögmaður man ég ekki eftir viðlíka ummælum og þeim sem landsliðsþjálfari karlalandsliðsins lét falla á dögunum um þetta viðkvæma mál. Lýsti hann því sem “vonbrigðum fyrir Ísland” ef umbjóðandi minn myndi kæra niðurfellinguna. Með þessum ummælum virðist landsliðsþjálfarinn egna þjóðinni gegn umbjóðanda mínum. Brotaþola, sem hefur eingöngu leitast við að ná fram réttlæti vegna misbeitingu sem hún varð fyrir.

Ég tel þessi ummæli landsliðsþjálfarans ekki aðeins ósmekkleg heldur einnig siðferðilega ámælisverð. Um er að ræða lögformlegt ferli með lögboðna og fremur stutta fresti. Þeir liggja fyrir og eru öllum ljósir. Umbjóðanda minn varðar að öðru leyti ekki nokkurn hlut um landsliðið og það er ólíðandi að ábyrgðin sé sett á hennar herðar af þjálfara og forystu KSÍ líkt og raun ber vitni.

Undanfarnir mánuðir hafa verið umbjóðanda mínum þungbærir. Það er ekki aðeins ósmekklegt að hún eigi líka að bera ábyrgð á því hvernig landsliðinu í fótbolta reiðir af, heldur óboðlegt. Sýnir þetta við hvaða ofurefli er að etja ef landsliðsþjálfarar ætla með þessum hætti að leggjast gegn því að brotaþolar leiti réttar síns.

Það að setja mál sem þessi í lögformlegt ferli eru nógu þung skref að stíga þótt brotaþolum sé ekki gert enn erfiðara um vik með skeytasendingum af þessu tagi frá forkólfum íslensku knattspyrnuhreyfingarinnar.

Ég tel að Knattspyrnusambandið skuldi umbjóðanda mínum opinbera afsökunarbeiðni á ummælunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert