Knattspyrnufélagið Þróttur úr Reykjavík hefur breytt félagsmerki sínu.
Félagið gaf frá sér myndskeið um breytta tíma í Laugardalnum en mikil uppbygging hefur verið hjá félaginu undanfarin ár.
Er nýja merkið sýnt í myndskeiðinu ásamt gamla merki félagsins sem hefur verið frá stofnun þess.
Þar má einnig sjá búningana sem félagið klæðist á komandi leiktíð.