Spá mbl.is: Fyrsta sætið

Valskonur hófu tímabilið á því að vinna Breiðablik í úrslitaleik …
Valskonur hófu tímabilið á því að vinna Breiðablik í úrslitaleik deildabikarsins. mbl.is/Árni Sæberg

Valur verður Íslandsmeistari kvenna í knatt­spyrnu fjórða árið í röð á kom­andi keppn­is­tíma­bili, sam­kvæmt spá Morg­un­blaðsins og mbl.is.

Valur fékk 204 stig þegar at­kvæði spá­mann­anna voru lögð sam­an en þar voru gef­in stig frá einu (fyr­ir 10. sætið) upp í tíu (fyr­ir fyrsta sætið). Valskonur eru ellefu stig­um fyr­ir ofan Breiðablik sem hafnaði í öðru sæt­inu í spánni.

Valskonur unnu Íslandsmeistaratitilinn á sannfærandi hátt í fyrra. Þær enduðu sex stigum fyrir ofan Breiðablik en voru með tíu stiga forystu þegar þrjár umferðir voru eftir og þar með orðnar meistarar. Þetta var fjórtándi meistaratitill Vals og sá fjórði á síðustu fimm árum. Valur hefur þrettán sinnum orðið bikarmeistari en þó aðeins unnið bikarinn einu sinni á undanförnum tólf árum. 

Valur teflir fram gjörbreyttu liði í ár en alls hafa 16 leikmenn horfið á braut, þar með talin Arna Sif Ásgrímsdóttir sem missir af öllu tímabilinu vegna meiðsla. Þá er fyrirliðinn Elísa Viðarsdóttir ekki komin af stað eftir að hafa eignast barn í mars. Fimm af íslenskum leikmönnum Vals í fyrra leika nú í atvinnumennsku erlendis. Lára Kristín Pedersen, Bryndís Arna Níelsdóttir og Ásdís Karen Halldórsdóttir eru þar á meðal. 

Stór hópur hefur komið á Hlíðarenda í staðinn. Meðal nýrra leikmanna eru Katie Cousins sem kom frá Þrótti og var einn besti leikmaður deildarinnar í fyrra, Jasmín Erla Ingadóttir úr Stjörnunni sem var markadrottning deildarinnar fyrir  tveimur árum og hin þrautreynda Málfríður Erna Sigurðardóttir sem lauk síðasta tímabili með því að spila sinn 300. leik í efstu deild en hún snýr aftur á Hlíðarenda eftir þriggja ára fjarveru.

Pétur Pétursson þjálfar Valsliðið áfram en þetta er hans sjötta tímabil með liðið.

Komn­ar:
Camryn Hartman frá Bandaríkjunum
12.4. Nadía Atla­dótt­ir frá Vík­ingi R.
24.2. Ragn­heiður Þór­unn Jóns­dótt­ir frá Hauk­um
16.2. Mál­fríður Erna Sig­urðardótt­ir frá Stjörn­unni
  9.2. Íris Dögg Gunn­ars­dótt­ir frá Þrótti R.
  7.2. Hailey Whita­ker frá Åland United (Finn­landi)
  3.2. Helena Ósk Hálf­dán­ar­dótt­ir frá Breiðabliki
  1.2. Jasmín Erla Inga­dótt­ir frá Stjörn­unni
  1.2. Katie Cous­ins frá Þrótti R.
  1.2. Lillý Rut Hlyns­dótt­ir frá FH (úr láni)

Farn­ar:
Hanna Kall­maier í FH
20.4. Eva Stef­áns­dótt­ir í Fram (lán)
18.4. Bryn­dís Ei­ríks­dótt­ir í Þór/​KA (lán - var í láni hjá HK)
18.4. Gló­dís María Gunn­ars­dótt­ir í Hauka (lán - var í láni hjá KH)
  8.3. Sig­ríður Th. Guðmunds­dótt­ir í Þrótt R.
29.2. Ásdís Kar­en Hall­dórs­dótt­ir í Lilleström (Nor­egi)
27.2. Lise Dissing í Bodö/​Glimt (Nor­egi)
20.2. Þór­dís Elva Ágústs­dótt­ir í Växjö (Svíþjóð)
20.2. Bryn­dís Arna Ní­els­dótt­ir í Växjö (Svíþjóð)
  3.2. Ída Marín Her­manns­dótt­ir í FH
  1.2. Birta Guðlaugs­dótt­ir í Vík­ing R.
30.1. Mál­fríður Anna Ei­ríks­dótt­ir í B 93 (Dan­mörku)
25.1. Lára Krist­ín Peder­sen í Fort­una Sitt­ard (Hollandi)
25.1. Laura Frank í AaB (Dan­mörku)
Re­bekka Sverr­is­dótt­ir hætt
Arna Sif Ásgríms­dótt­ir úr leik vegna meiðsla

Fyrstu leik­ir Vals:
21.4. Valur - Þór/KA
27.4. Þróttur R. - Valur
  2.5. Valur - Víkingur R.
  8.5. Keflavík - Valur
14.5. Valur - Tindastóll

Lokastaðan:
1 Valur 204
2 Breiðablik 193
3 Stjarnan 151
4 Þróttur R. 140
5 Þór/KA 126
6 Vík­ing­ur R. 103
7 FH 103
8 Fylk­ir 47
9 Tinda­stóll 46
10 Kefla­vík 42

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert