Bandaríska knattspyrnukonan Camryn Paige Hartman er gengin til liðs við Val en hún semur út tímabilið.
Hartman er 24 ára gamall bakvörður sem kemur til Vals frá Cleveland í Ohio. Hún er byrjuð að æfa með Valskonum.
Íslandsmeistarar Vals fá Þór/KA í heimsókn í fyrstu umferð Bestu deildar kvenna á sunnudaginn kemur.