Ítalska knattspyrnufélagið Juventus hefur mikinn áhuga á að fá ítalska bakvörðinn Matteo Darmian til að koma í stað Daniel Alves sem er að yfirgefa félagið. Darmian er sem stendur leikmaður Manchester United. Sky Sports greinir frá þessu.
Darmian hefur ekki verið fastamaður í liði United síðan hann kom til félagsins fra´Torino á 12,7 milljónir punda fyrir tveimur árum. Hann byrjaði einungis 15 leiki í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð. Hann var þó í byrjunarliðinu er United tryggði sér sigur í Evrópu deildinni með 2:0 sigri á Ajax í úrslitaleik.