Býst við að Neymar fari til Real

Neymar í eldlínunni með PSG.
Neymar í eldlínunni með PSG. AFP

Neymar, dýrasti knattspyrnumaður heims, gekk í raðir PSG í Frakklandi frá Barcelona á 222 milljónir evra síðasta sumar. Þrátt fyrir það hefur Neymar verið orðaður við erkifjendur Barcelona í Real Madrid að undanförnu.

Bakvörðurinn Marcelo, liðsfélagi Neymar í brasilíska landsliðinu og leikmaður Real, býst við að Neymar verði leikmaður Real Madrid einn daginn. „Ég held Neymar muni spila fyrir Real Madrid einn daginn. Hann myndi passa vel í liðið og félagið. Hann er einn af þessum ótrúlegu leikmönnum sem verða að spila fyrir Real,“ sagði Marcelo. 

Þeir félagar mætast í Meistaradeild Evrópu á miðvikudaginn kemur, er PSG fer í heimsókn til Madrídar í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert