Victor svissneskur bikarmeistari

Guðlaugur Victor Pálsson fyrirliði og samherjar í Zürich fagna bikarsigrinum …
Guðlaugur Victor Pálsson fyrirliði og samherjar í Zürich fagna bikarsigrinum í dag. Ljósmynd/@FC_Zuerich

Guðlaugur Victor Pálsson er svissneskur bikarmeistari í fótbolta eftir 2:1-sigur Zürich á Young Boys í bikarúrslitum í Bern í dag. Guðlaugur Victor lék allan leikinn hjá Zürich en hann er fyrirliði liðsins.

Michael Frey kom Zürich yfir á 11. mínútu og reyndist það eina mark fyrri hálfleiks. Sagone Sarr fékk sitt annað gula spjald á 67. mínútu og lék Zürich því síðustu 23 mínúturnar manni færri.

Guðlaugur Victor Pálsson, í röndóttri treyju, í úrslitaleiknum í dag.
Guðlaugur Victor Pálsson, í röndóttri treyju, í úrslitaleiknum í dag. Ljósmynd/@SchweizerCup

Það kom ekki að sök því Antonio Marchesano kom Zürich í 2:0 á 75. mínútu. Miralem Sulejmani minnkaði muninn skömmu síðar, en Zürich hélt út og vann góðan sigur. Young Boys varð á dögunum svissneskur meistari og átti því möguleika á tvöföldum sigri en af því varð ekki.

Tímabilið hjá Guðlaugi og félögum hefur verið afar gott, en liðið kom upp úr B-deildinni á síðustu leiktíð og endaði í 4. sæti svissnesku deildarinnar. Það hefur tryggt sér sæti í riðlakeppni Evrópudeildar UEFA.



Guðlaugur Victor er bikarmeistari
Guðlaugur Victor er bikarmeistari
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert