Dramatískur sigur í fyrsta leik Rúnars

Rúnar Alex Rúnarsson fer vel af stað með Dijon.
Rúnar Alex Rúnarsson fer vel af stað með Dijon. dfco.frdfco.fr

Rúnar Alex Rúnarsson lék sinn fyrsta leik fyrir franska liðið Dijon sem hafði betur á móti Montpellier á útivelli í efstu deild Frakklands í fótbolta í kvöld, 2:1. Rúnar stóð á milli stanga Dijon allan leikinn. 

Markmaðurinn komst vel frá sínu í leiknum og varði sex skot. Hann kom hins vegar engum vörnum við á fimmtu mínútu er Pedro Mendes kom Montpellier yfir. Júlio Tavares jafnaði leikinn á 51. mínútu og Senou Coulibaly skoraði sigurmarkið í uppbótartíma. 

Næsti leikur Dijon er við Kolbein Sigþórsson og félaga í Nantes næstkomandi laugardag. Kolbeinn var ekki í hópi Nantes í fyrstu umferðinni í dag en lið hans tapaði 1:3 fyrir Mónakó á heimavelli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert