Rakel skoraði þriðja leikinn í röð

Rakel Hönnudóttir.
Rakel Hönnudóttir. mbl.is/Golli

Rakel Hönnudóttir, landsliðskona í knattspyrnu, skoraði í þriðja leiknum í röð í sænsku úrvalsdeildinni þegar lið hennar Limhamn Bunkeflo gerði jafntefli við Växjö í dag, 1:1.

Limhamn lenti undir snemma leiks og var undir í hálfleik en Rakel jafnaði metin á 70. mínútu og niðurstaðan 1:1 jafntefli. Þetta var sjötta deildarmark hennar fyrir liðið á fyrstu leiktíðinni í sænsku úrvalsdeildinni. Rakel lék allan leikinn fyrir liðið eins og Anna Björk Kristjánsdóttir.

Þær Anna og Rakel eru í harðri fallbaráttu í deildinni. Liðið er með 18 stig í næstneðsta sæti, tveimur stigum frá Vittsjö sem er í öruggu sæti þar fyrir ofan. Vittsjö á þó leik til góða gegn Rosengård á morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert