Real Madrid að kaupa leikmann af City

Brahim Díaz í leik með Manchester City.
Brahim Díaz í leik með Manchester City. AFP

Spænska knattspyrnufélagið Real Madríd er svo gott sem búið að ganga frá kaupum á spænska leikmanninum Brahin Diaz af Manchester City. Diaz, sem er 19 ára, hafnaði samningstilboði Manchester City á dögunum. 

Díaz kom til Manchester City frá Málaga árið 2015 fyrir 200.000 pund, en kaupverð Real er ekki ljóst sem stendur. Spánverjinn spilaði alls 14 leiki fyrir City og þar af fimm í ensku úrvalsdeildinni, alla á síðustu leiktíð. 

Hann hefur leikið þrjá leiki á þessu tímabili, tvo í deildabikarnum og í Samfélagsskildinum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert