Aron fór meiddur af velli

Aron Jóhannsson
Aron Jóhannsson

Aron Jóhannsson fór meiddur af velli í 6:2-stórsigri Hammarby gegn Gautaborg í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Aron, sem gekk í raðir Hammarby í sumar, var í byrjunarliðinu í dag en entist aðeins í 11 mínútur en heimamenn urðu að gera tvær skiptingar á fyrstu 18 mínútum leiksins.

Aron haltraði af velli og virtist þjáður samkvæmt Twitter-síðu félagsins en ekki er vitað meira um meiðslin að svo stöddu. Með sigrinum fór Hammarby upp í 4. sæti deildarinnar og er nú fimm stigum frá toppliði AIK sem vann Häcken 2:1 á útivelli í dag. Kolbeinn Sigþórsson sat þar á varamannabekk AIK allan tímann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert