Neymar skuldar Barcelona milljarð

Neymar lék með Barcelona frá 2013 til 2017 en hann …
Neymar lék með Barcelona frá 2013 til 2017 en hann var seldur til PSG fyrir 222 milljónir evra í ágústbyrjun 2017. AFP

Brasilíski knattspyrnumaðurinn Neymar þarf að greiða fyrrverandi félagi sínu Barcelona upphæð sem samsvarar um einum milljarði íslenskra króna.

Umræður hafa verið í gangi um að Neymar snúi aftur til Barcelona frá París SG, en þangað var hann seldur fyrir metfé. Á sama tíma var hann í málaferlum við félagið og taldi að Barcelona skuldaði sér alls tæplega sjö milljarða íslenskra króna í bónusgreiðslur.

Dómstóll í Barcelona hefur nú kveðið upp þann úrskurð að félagið skuldi Brasilíumanninum ekki krónu og hann þurfi nú að greiða allan málskostnað, sem nemur um einum milljarði íslenskra króna.

Neymar getur áfrýjað dómnum en Barcelona segir á heimasíðu sinni að fari svo muni félagið fylgja málinu eftir alla leið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert