Lyon í úrslitaleik Meistaradeildarinnar

Selma Bacha og Wendie Renard fagna sigrinum í dag
Selma Bacha og Wendie Renard fagna sigrinum í dag AFP/ FRANCK FIFE

Kvennalið Lyon tryggði sér sæti í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í fótbolta í dag með sigri á löndum sínum í PSG. Lyon vann báða leikina í einvíginu.

Lyon mætir Barcelona í úrslitaleiknum en spænska liðið hafði betur gegn Chelsea í hinni undanúrslitarimmunni.

Lyon vann fyrri leikinn á heimavelli 3:2 og komst yfir eftir tveggja mínútna leik í dag með marki varnarmannsins Selma Bacha. Tabitha Chawinga jafnaði metin í 1:1 undir lok fyrri hálfleiks en Daelle Melchie Dumornay skoraði sigurmark Lyon tíu mínútum fyrir leikslok og gulltryggði sætið í úrslitaleiknum, samanlagt 5:3.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert