Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR, verður á meðal keppenda á Kia Classic mótinu sem hefst í Kaliforníu í Bandaríkjunum á fimmtudaginn en mótið er hluti af LPGA-mótaröðinni.
Ólafíu Þórunni tókst ekki að komast í gegnum niðurskurðinn á Bank of Hope Founders Cup í Phoenix um síðustu helgi en vonandi tekst henni betur upp í Kaliforníu.
Flestir af bestu kvenkylfingum heims eru skráðir til leiks á Kia Classic mótinu og þeirra á meðal er hin kínverska Shanshan Feng sem er í efsta sæti á heimslistanum.