Valdís í eldlínunni á morgun

Valdís Þóra Jónsdóttir.
Valdís Þóra Jónsdóttir. Ljósmynd/LET

Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni hefur leik á morgun, fimmtudag, á Jabra Ladies Open. Mótið er hluti af sterkustu atvinnumótaröð Evrópu í kvennaflokki, LET Evrópumótaröðinni.

Mótið fer fram á Evian Resort-vellinum í Frakklandi og eru keppnisdagarnir alls þrír og verður niðurskurður að loknum öðrum keppnisdegi.

Valdís Þóra hefur keppt á alls átta mótum á LET Evrópumótaröðinni á þessu tímabili. Hún er í 72. sæti á stigalista mótaraðarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert