KKÍ viðurkennir dómaramistök

Ísak Ernir Kristinsson gaf Unni Töru Jónsdóttur tæknivillu fyrir að …
Ísak Ernir Kristinsson gaf Unni Töru Jónsdóttur tæknivillu fyrir að vilja huga að liðsfélaga. mbl.is/Kristinn Magnússon

KR og Valur áttust við í Dominos-deild kvenna í körfubolta í gærkvöldi. Í seinni hálfleik skullu þær Helena Sverrisdóttir úr Val og Sóllilja Bjarnadóttir úr KR illa saman með þeim afleiðingum að þær lágu eftir. 

Unnur Tara Jónsdóttir, leikmaður KR, er læknir og bað hún dómara leiksins um að fá að fara inn á völlinn til að huga að Sóllilju sem gat ekki haldið leik áfram. Ísak Ernir Kristinsson, einn dómara leiksins, tók illa í það og gaf Unni tæknivillu. 

Atvikið hefur vakið furðu og reiði körfuknattleiksaðdáanda á Íslandi og í frétt á heimasíðu KKÍ í dag kemur fram að Ísak hafi viðurkennt að um mistök hafi verið að ræða.

„Eftir á að hyggja er dómarinn þeirrar skoðunar að það hafi verið mistök af sinni hálfu að hleypa ekki leikmanninum inn á völlinn. Dómaranefnd er sammála dómaranum um að mistök hafið verið að ræða þegar að leikmanninum var synjað um að fara inn á völlinn.

Til fræðslu þá ber þess að geta að eingöngu liðslæknum er heimilt að fara inn á völlinn án heimildar dómara samkvæmt reglum, þjálfarar og leikmenn geta aldrei talist sem liðslæknar í þeim tilvikum.

Það er samt alltaf þannig að erfitt er að fara yfir einstaka mál sem gerast í leikjum á milli dómara og hlutaðeigandi einstaklinga og það á einnig við hér,“ segir m.a í fréttinni á heimasíðu KKÍ. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert