Íris yfirlögfræðingur Virðingar

Íris Arna Jóhannsdóttir
Íris Arna Jóhannsdóttir

Íris Arna Jóhannsdóttir hefur verið ráðin yfirlögfræðingur Virðingar hf.

Íris Arna er með kandídatspróf í lögfræði frá Háskóla Íslands og LL.M gráðu í banka- og fjármálalögfræði frá The London School of Economics and Political Science. Hún er með próf í verðbréfaviðskiptum og með réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómi.

Íris Arna var yfirlögfræðingur H.F. Verðbréfa hf. 2012 til 2015 og þar á undan verkefnastjóri hjá LOGOS lögmannsþjónustu 2007 til 2012.

Íris Arna hefur einnig starfað á verðbréfasviði Fjármálaeftirlitsins og í Frjálsa fjárfestingarbankanum hf. Þá kennir Íris Arna lög og reglur á fjármagnsmarkaði í námi til undirbúnings fyrir próf í verðbréfaviðskiptum hjá Opna háskólanum í Reykjavík.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK