Viðskiptaafgangur 1,6 milljarðar króna

Seðlabanki Íslands.
Seðlabanki Íslands. mbl.is/Golli

Á öðrum ársfjórðungi 2018 var 1,6 milljarða afgangur á viðskiptajöfnuði við útlönd og var hrein staða við útlönd jákvæð um 261 milljarð króna. Þetta kemur fram í nýbirtum upplýsingum á vef Seðlabanka Íslands sem sýna bráðabirgðayfirlit um greiðslujöfnuð við útlönd á öðrum ársfjórðungi 2018 og erlenda stöðu þjóðarbúsins í lok ársfjórðungsins.

Halli á vöruviðskiptajöfnuði var 49,8 milljarðar króna en 55 milljarða afgangur á þjónustujöfnuði. Frumþáttatekjur skiluðu 0,1 milljarðs afgangi en rekstrarframlög 3,6 milljarða halla.

Samkvæmt bráðabirgðayfirlitinu námu erlendar eignir þjóðarbúsins um 3.250 milljörðum króna í lok ársfjórðungsins en skuldir 2.989 milljörðum.

Hrein staða við útlönd var því jákvæð um 261 milljarð króna eða 9,8% af vergri landsframleiðslu (VLF) og batnaði um 69 milljarða, eða 2,6% af VLF í fjórðungnum.

Hrein fjármagnsviðskipti bættu erlenda stöðu þjóðarbúsins um 15 ma.kr. í fjórðungnum. Erlendar eignir jukust um 15 milljarða vegna fjármagnsviðskipta en skuldir stóðu á jöfnu.

Gengis- og verðbreytingar höfðu jákvæð áhrif á erlenda stöðu þjóðarbúsins um 59 milljarða króna. Skýrist það af 3,1% lækkun á gengi krónunnar gagnvart helstu gjaldmiðlum miðað við gengisskráningarvog og rúmlega 1% verðhækkunum á erlendum verðbréfamörkuðum í ársfjórðungnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK